Valur lagði Stjörnuna í Umhyggjuhöllinni í kvöld í 16. umferð Bónus deildar kvenna, 84-85.
Eftir leikinn er Valur í 6. sæti deildarinnar með 14 stig á meðan Stjarnan er í 7. sætinu með 12 stig.
Leikur kvöldsins var í járnum í fyrri hálfleik, en Valur var þó skrefinu á undan að fyrsta fjórðung loknum, 21-26. Leikar áfram nokkuð jafnir undir lok fyrri hálfleiksins, en þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik er Valur enn á undan, 41-45.
Spennan heldur áfram í upphafi seinni hálfleiksins, en undir lok þriðja leikhluta nær Valur aðeins að slíta sig frá heimakonum og koma forskoti sínu í 10 stig. Á lokamínútum fjórðungsins svarar Stjarnan því með áhlaupi og er munurinn aðeins þrjú stig fyrir lokaleikhlutann, 64-67. Lokakafli leiksins var svo gífurlega spennandi. Stjarnan náði stigs forystu í þrígang á brakmínútum leiksins, en lokakarfan kom frá Ástu Júlíu Grímsdóttur leikmanni Vals þegar tæp mínúta var til leiksloka, 84-85. Stjarnan fékk tvær tilraunir til að jafna eða komast yfir á lokamínútunni, en allt kom fyrir ekki. Valur slapp með eins stig sigur.
Atkvæðamestar fyrir Stjörnuna í leiknum voru Denia Davis Stewart með 23 stig, 10 fráköst og Katarzyna Anna Trzeciak með 17 stig og 11 fráköst.
Fyrir Val var Alyssa Cerino atkvæðamest með 21 stig og 12 fráköst. Henni næst var Jiselle Thomas með 17 stig, 3 fráköst og 4 stoðsendingar.
Myndasafn (væntanlegt)