Sigtryggur Arnar Björnsson og Rel Canoe máttu þola tap í kvöld fyrir Forca Lleida í Led Oro deildinni á Spáni. 68-93. Real Canoe eru sem áður í 10. sæti B hluta deildarinnar með tvo sigra og tólf töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 25 mínútum spiluðum skilaði Arnar 10 stigum, 2 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Næsti leikur Real Canoe er gegn Kára Jónssyni og félögum í Girona eftir landsleikjahléið, 28. febrúar.