spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaArnar Guðjóns: Spáin er bara skrípó

Arnar Guðjóns: Spáin er bara skrípó

Dominos deild karla hófst í gærkvöldi með fjórum leikjum. Líkt og áður er mikil spenna fyrir nýju tímabili en miklar breytingar hafa orðið á liðunum sem gerir spennuna jafnvel enn meiri fyrir þetta tímabil.

Karfan hitar upp fyrir tímabilið með því að fara yfir öll liðin og ræða við leikmann eða þjálfara liðsins. Að lokum er það Stjarnan.

Stjarnan

Miklar væntingar eru gerðar til Stjörnunnar í vetur eftir vonbrigðatímabil í fyrra. Frábærir leikmenn hafa bæst við hópinn og kjarninn orðinn ansi þéttur. Landsliðsmenn í flestum stöðum og fyrrum aðstoðarþjálfari landsliðsins á hliðarlínunni. Verður spennandi að fylgjast með liðinu á nýja parketinu í Ásgarði í vetur.

Spá KKÍ: 1. sæti

Lokastaða á síðustu leiktíð: 7. sæti

Þjálfari liðsins: Arnar Guðjónsson

Leikmaður sem vert er að fylgjast með: Dúi Þór Jónsson. Gríðarlegt efni hér á ferð sem miðað við undirbúningstímabilið mun fá góð tækifæri í vetur. Hefur þroskast sem leikmaður síðasta árið og gæti minnt rækilega á sig á þessu tímabili.

Komnir og farnir: 

Komnir:

Ægir Þór Steinarsson frá Tau Castello

Paul Anthony Jones III frá Haukum

Antti Kanervo frá Helsinki Seagulls (Finnland)

Ágúst Angantýsson frá Vestra

Magnús Bjarki Guðmundsson úr pásu

Farnir:

Darrell Combs til Englands

Róbert Sigurðsson til Fjölnis

Dagur Kár Jónsson til Raiffeisen Flyers Wels (Austurríki)

Marvin Valdimarsson til Álftanes

Viktor Marínó Alexandersson í Álftanes

Bjarni Geir Gunnarsson til Breiðabliks

Óskar Þór Þorsteinsson hættur

Viðtal við Arnar um komandi leiktíð:

Fréttir
- Auglýsing -