spot_img
HomeFréttirArnar Freyr meiddur

Arnar Freyr meiddur

8:49

{mosimage}

Arnar Freyr Jónsson, leikmaður Keflvíkinga í körfuknattleik, verður frá keppni í einhvern tíma. Hann meiddist á hné í upphafi leiks Keflvíkinga og Hamars/Selfoss á sunnudaginn. Við skoðun kom lítið í ljós en Keflvíkingar vonast eftir því að hann komist í myndatöku í vikunni og þá ætti að skýrast hversu lengi hann verður frá. "Hann spilar ekkert á næstunni," sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, í gær en Keflvíkingar mæta Tindastóli á heimavelli sínum á fimmtudaginn og sækja Grindvíkinga heim á mánudaginn. Í lokaumferðinni leikur Keflavík við Snæfell.

Arnar Freyr hefur spilað 18 af 19 leikjum Keflvíkinga í Iceland Express-deildinni í vetur. Hann hefur í þessum leikjum skorað 143 stig sem gerir að meðaltali 7,9 stig í leik.

www.mbl.is

Mynd: karfan.is

Fréttir
- Auglýsing -