spot_img
HomeNeðri deildir2. deild karlaÁrmann og Þróttur mætast í úrslitum annarar deildar

Ármann og Þróttur mætast í úrslitum annarar deildar

Undanúrslit 2. deildar karla voru leikin í dag, en aðeins þurfti að vinna einn leik til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Þróttur lagði Leikni örugglega í Ljónagryfjunni og í Kennó höfðu deildarmeistarar Ármanns betur gegn Snæfell.

Það verða því Ármann og Þróttur sem mætast í úrslitaeinvígi deildarinnar, þar sem að það lið sem fyrr vinnur tvo leiki mun taka sæti ÍA í fyrstu deildinni á næsta tímabili.

Fyrsti leikur úrslita er komandi sunnudag 3. apríl í Kennó.

Úrslit:

Þróttur 92 – 58 Leiknir

Ármann 104 – 81 Snæfell

Fréttir
- Auglýsing -