Tveir leikir fóru fram í fyrstu deild kvenna í kvöld.
Selfoss hafði betur gegn b liði Keflavíkur á Selfossi.
Ármann tryggði sér sigur í 1. deildinni þann 7.mars síðastliðinn og þar með sæti í Bónus deild kvenna á næstu leiktíð, en eftir sigurleik kvöldsins fengu þær afhentan deildarmeistaratitil fyrstu deildarinnar.
Lokastöðu deildarinnar má sjá hér fyrir neðan, en þar má sjá Ármann efstar, með beinan farmiða upp um deild. Þá fara KR, Fjölnir og Selfoss í umspil með liðinu sem endar í næst efsta sæti Bónus deildarinnar um hvaða lið fær einnig sæti í Bónus deildinni á næstu leiktíð
Lokastaða deildarinnar (stig)
Ármann 36
KR 30
Stjarnan u 20
Fjölnir 18
Selfoss 12
Keflavík b 6
ÍR 16
Úrslit kvöldsins
Fyrsta deild kvenna
Ármann 78 – 66 KR
Selfoss 75 – 69 Keflavík b