spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaÁrmann hóf árið á sigri

Ármann hóf árið á sigri

Ármann heimsótti Fjölni í Grafarvoginn í gærkvöldi í fyrsta leik nýs árs í fyrstu deild kvenna.

Leikurinn hélst jafn í fyrri hálfleik en í þriðja leikhluta byggðu Ármannsstelpur upp gott forskot og sigldu heim öruggum sigri. Lokatölur 64-91 fyrir Ármanni. Ármann eru því enn ósigraðar í 1. deildinni og byrja nýja árið vel.

Jónína Þórdís skoraði 27 stig og tók 10 fráköst og Alarie Mayze var með 24 stig og 11 fráköst fyrir Ármann. Carlotta Ellenrieder tók 19 fráköst og skoraði 10 stig og Birgit Ósk Snorradóttir bætti við 15 stigum og 10 fráköstum. 

Ármann vann frákastabaráttuna 68-42 og munar mikið um það í svona leik.

Hjá Fjölni var Brazil Harvey-Carr með 20 stig og 15 fráköst og Aðalheiður María Davíðsdóttir var með 19 stig.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatans)

Fréttir
- Auglýsing -