Lið Hamars í fyrstu deild karla hefur gengið frá samning við bandaríkjamanninn Anthony Lee um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Er hann 24 ára gamall, 188cm bakvörður sem mun í fyrsta skipti leika sem atvinnumaður.
Lee kemur til liðsins beint úr Kutztown háskólanum, en þar setti hann 27 stig, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á síðasta tímabili.