spot_img
HomeFréttirANSAathletics með opinn kynningarfund næsta sunnudag

ANSAathletics með opinn kynningarfund næsta sunnudag

ANSAathletics er íslenskt fyrirtæki sem hjálpar ungu íþróttafólki að hreppa styrki í bandarískum háskólum í gegnum íþrótt sína. Frá stofnun fyrir fjórum árum síðan hefur ANSAathletics stutt við íþróttafólk í körfu, sundi, frjálsum íþróttum og golfi. Nú býðst íslenskum knattspyrnuiðkendum einnig að nýta sér þjónustu ANSAathletics. Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir unga iðkendur að leggja kapp á íþrótt sína við bestu aðstæður samhliða háskólanámi.

Til að kynna ferlið og útskýra hvernig áhugasamir geta nýtt sér þessa möguleika, mun ANSAathletics halda opinn kynningarfund á Zoom þann 8. september kl. 13:00.

Skráning á kynningarfundinn fer fram hér: Skráning á kynningarfund.

Frekari upplýsingar um ANSAathletics má finna á heimasíðu fyrirtækisins: www.ansaathletics.com

ANSAathletics er einnig á Facebook Facebook.com/ansaathletics og Instagram instagram.com/ansaathletics.

Fréttir
- Auglýsing -