spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaAnnar oddaleikur morgundagsins færður

Annar oddaleikur morgundagsins færður

Annað kvöld munu fara fram oddaleikir í undanúrslitum Subway deildar karla. Einvígi Keflavíkur og Grindavíkur annars vegar og Vals og Njarðvíkur hinsvegar eru jöfn 2-2 og því þarf fimmta leik til að skera úr um hvaða lið fara í úrslitaeinvígið. Báðir áttu þessir oddaleikir samkvæmt upphaflegu skipulagi að fara fram komandi þriðjudag 14. maí kl. 19:15.

Annar leikurinn hefur nú verið færður um klukkutíma. Mun oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur því fara fram kl. 19:15 í Smáranum á meðan að oddaleikur Vals og Njarðvíkur mun hefjast klukkutíma seinna kl. 20:15 í N1 höllinni.

Skipulag/tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -