Undir 16 ára lið stúlkna mátti þola tap í dag fyrir Eistlandi á Norðurlandamótinu í Kisakallio, 77-88. Það sem af er móti hefur liðið því unnið einn leik og tapað tveimur, en á morgun leika þær við Svíþjóð.
Karfan spjallaði við Önnu Maríu Magnúsdóttur leikmann liðsins eftir leik í Kisakallio. Anna María átti fínan leik þrátt fyrir tapið, skilaði 14 stigum, 5 fráköstum og 2 stolnum boltum.