Haukar lögðu Keflavík í Ólafssal í kvöld í 8. umferð Bónus deildar kvenna. Með sigrinum eru Haukar við topp deildarinnar með 7 sigra og aðeins 1 tap á meðan Keflavík er í 3. sætinu með 5 sigra og 3 töp.
Karfan spjallaði við Önnu Ingunni Svansdóttur leikmann Keflavíkur eftir leik í Ólafssal.