Keflavík lagði Breiðablik í kvöld í Subway deild kvenna, 73-58. Eftir leikinn er Keflavík í 5. sæti deildarinnar með 14 stig á meðan að Breiðablik er í 6. sætinu með 10 stig.
Karfan spjallaði við Önnu Ingunni Svansdóttur leikmann Keflavíkur eftir leik í Blue Höllinni. Anna Ingunn átti flottan leik fyrir Keflavík í kvöld, skilaði 19 stigum og 3 fráköstum á rúmri 31 mínútu spilaðri.