Andrée Fares Michelsson og Rendsburg Twisters lögðu Bramsche 1.Regionalliga Herren í Þýskalandi í gærkvöldi, 93-86.
Eftir leikinn er Rendsburg í 5. sæti deildarinnar með 26 stig, 13 sigra og 9 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Andrée 26 stigum, 3 fráköstum og 5 stoðsendingum.
Næsti leikur Andrée og Rendsburg er þann 5. mars gegn Berlin Braves.