spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaAliyah tekur slaginn með Íslandsmeisturunum "Á næsta tímabili verða gerðar til okkar...

Aliyah tekur slaginn með Íslandsmeisturunum “Á næsta tímabili verða gerðar til okkar væntingar”

Njarðvík hefur samið á nýjan leik við Aliyah Collier og mun hún taka slaginn með þeim á næsta tímabili.

Aliyah kom til liðsins fyrir síðasta tímabil, vann Íslandsmeistaratitilinn með félaginu og var valinn verðmætasti leikmaður úrslita að þeim loknum, en í lokaleik úrslitanna skilaði hún 25 stigum og 24 fráköstum.

Á tímabilinu í heild var Aliyah með 24 stig og 16 fráköst að meðaltali í leik.

Tilkynning:

Aliyah Collier mun leika með Njarðvíkingum á næstu leiktíð í Subway-deild kvenna. Collier skrifaði undir eins árs samning áður en hún hélt til Bandaríkjkanna á heimaslóðir í sumarfrí.


„Ég hlakka til næsta tímabils með þessum góðu leikmönnum og þjálfurum hjá þessu frábæra félagi. Á næsta tímabili verða gerðar til okkar væntingar og ef við höldum okkur við það sem við gerum vel og stöndum saman þá munum við eiga gott tímabil. Ég setti mér markmið fyrir síðasta tímabil og ég náði flestum þeirra og varð að betri leikmanni, þetta var mér einstaklega gott ár,“ sagði Collier í samtali við heimasíðu Njarðvíkur.


Það er ekki ofsögum sagt að Collier hafi átt gott tímabil sem var að líða en hún skoraði 24 stig í leik auk þess að leiða deildina í fráköstum með 16,4 að meðaltali. Hún var síðan valin besti leikmaður úrslitakeppninnar þar sem hún leiddi Íslandsmeistara Njarðvíkur í flestum tölfræðiþáttum.

Fréttir
- Auglýsing -