spot_img
HomeFréttirÁlftanes semur við Okeke en lætur Yetna fara

Álftanes semur við Okeke en lætur Yetna fara

Álftanes hefur gert breytingar á liði sínu en það hefur látið Alexis Yetna fara og í stað hans samið við David Okeke um að leika með liðinu í vetur.

Hinn ítalski Okeke er þekkt stærð í Úrvalsdeildinni þar sem hann hefur leikið síðan 2021, fyrst með Keflavík og svo síðasta vetur með Haukum. Á síðasta tímabili var hann með um 17 stig og 10 fráköst að meðaltali í leik.

Alexis Yetna staldraði hins vegar stutt við í Forsetahöllinni en liðið samdi við hann fyrr í sumar og lék hann fimm æfingarleiki með liðinu, tvo á Íslandi og þrjá í Króatíu.

Fréttir
- Auglýsing -