Nýliðar Álftaness hafa samið við Samuel Prescott Jr. um að leika með liðinu í 1. deildinni á komandi tímabili. Samuel þekkir vel til körfuboltans á Íslandi en hann lék áður með Fjölni og Hamar með góðum árangri.
Samuel lék háskólabolta með Marist og seinna meir Mount St. Mary á árunum 2009 til 2014. Hann lék tímabilið 2015-2016 með Hamri í 1. deildinni þar sem hann leiddi deildina í skorun með 29,6 stigum ásamt því að taka 9.8 fráköst að meðaltali í leik.
Eftir að hafa spilað á Spáni og í Ekvador, þá samdi Samuel við Fjölni fyrir 2017-2018 tímabilið þar sem hann skoraði 28,8 stig og tók 7,3 fráköst að meðaltali í leik.
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Álftaness, var ánægður með nýja manninn.
„Við erum ungt félag sem er að leika í fyrsta skipti í 1. deild. Í ljósi þess fannst okkur mikilvægt að ráða til okkar leikmann sem væri nokkuð öruggt að myndi skila okkur góðu framlagi. Sam er þekkt stærð í þessari deild og mjög fjölhæfur leikmaður sem getur hjálpað okkur á margan hátt á báðum endum vallarins í baráttunni sem bíður okkar.“
Samuel er ekki eina viðbótin sem nýliðarnir hafa fengið því Justin Shouse hefur tekið fram skóna og mun leika með liðinu í vetur. Liðið hefur einnig á að skipa fjölmiðlamanninum og stórskyttunni Kjartani Atla Kjartanssyni og verður því ekki árennilegt í frumraun sinni í 1. deildinni.