Nýliðar Hauka lögðu KR í kvöld í 3. umferð Subway deildar karla, 83-108. Eftir leikinn eru Haukar taplausir í efsta sæti deildarinnar á meðan að KR er í 12. sætinu án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Karfan spjallaði við Alexander Knudsen leikmann Hauka eftir leik á Meistaravöllum. Alexander er uppalinn KR-ingur og var hann því að leika gegn sínum gömlu félögum í fyrsta skipti í deildinni í vetur. Á tæpum 17 mínútum spiluðum í leiknum skilaði hann 8 stigum, 6 fráköstum og 2 stoðsendingum.