spot_img
HomeFréttirAlda Leif með slitið krossband

Alda Leif með slitið krossband

 Alda Leif Jónsdóttir leikmaður Snæfells er með slitið krossband á vinstra hné en þetta kom í ljós eftir segulómskoðun. Alda Leif heldur undir hnífinn í byrjun maí og ætlar sér að koma inní næsta tímabil ef allt gengur að óskum.
 Alda Leif skyldi eftir sig stórt skarð í Snæfellsliðinu en hún var með 10 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar í leik í vetur.
Alda Leif hafði áður fyrr á ferli sínum slitið krossband á hægra hné og var hún með rof í örvef að plaga hana í allan vetur. Alda Leif sleit svo krossbandið á æfingu þegar hún var að gera sig tilbúna fyrir undanúrslitin á íslandsmótinu í Dominosdeildinni.
 
Umfj: Símon B Hjaltalín
 
Fréttir
- Auglýsing -