spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaAkureyringar semja við nýjan leikmann

Akureyringar semja við nýjan leikmann

Þór Akureyri hefur samið við Nataliu Lalic um að leika með félaginu í Bónusdeild kvenna.

Natalia er áströlsk en með ítalskt vegabréf og lék áður í bandaríska háskólakörfuboltanum með Indiana State Sycamores frá 2020 til 2023. Hún er 25 ára gömul og leikur sem bakvörður.

Hún kemur til Þórs frá Woodville Warriors í heimalandinu þar sem hún lék í NBL1 deildinni.

Fréttir
- Auglýsing -