spot_img
HomeFréttirÁgúst með æfingabúðir að Ásvöllum

Ágúst með æfingabúðir að Ásvöllum

{mosimage}

 

 (Ágúst Björgvinsson)

Körfuboltabúðir verða á Ásvöllum undir handleiðslu Ágústs Björgvinssonar dagana 14.-18. ágúst. Búðirnar eru hugsaðar fyrir áhugasama stráka og stelpur á aldrinum 14(´92) til 18(´88) ára.   

Ágúst er þjálfari Íslandsmeistara Hauka og var kostinn besti þjálfari 1. deildar kvenna undanfarin tvö tímabil. Að þessu verður búðunum skipt upp eftir stöðum. Fyrstu þrjá dagana(14.-16. águst) verða bakvarðabúðir og seinni tvo dagana(17. og 18. ágúst) verða miðherja/framherjabúðir.

Körfuboltabúðirnar eru á milli 09.00 og 12.00 frá mánudeginum 14. ágúst. til 18. ágúst.  Skráning fer fram með tölvupósti á [email protected] eða á fyrsta degi námskeiðisins, 14. ágúst, á Ásvöllum kl. 09:00. Það er einnig hægt að fá frekari upplýsingar og svör við fyrirspurnum á póstfangið [email protected].  

Verð er 2.500 krónur fyrir bakvarðabúðirnar og 2.000 krónur fyrir miðherja/framherjabúðirnar. Ef farið er í báðar búðirnar kostar það 3.500 krónur. ATH. takmarkaður fjöldi kemst að.

 

Frétt af www.kki.is

  

Fréttir
- Auglýsing -