Undir 16 ára lið drengja leikur þessa dagana á Evrópumótinu í Sarajevo í Bosníu. Í kvöld tapaði liðið í átta liða úrslitum mótsins gegn Bosníu, 86-59. Liðið nær því ekki lengra á mótinu en spilar um sæti 5 til 8.
Fréttaritari Körfunnar í Sarajevo náði tali af þjálfara liðsins, Ágústi Björgvinssyni eftir leik dagsins.