spot_img

Áfram með meisturunum

Thelma Dís Ágústsdóttir hefur framlengt samningi sínum við meistara Keflavíkur til ársins 2026. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Thelma Dís kom til Keflavíkur fyrir síðasta tímabil eftir háskólanám hjá Ball State University en þangað fór hún árið 2018, en liðið vann alla titla sem í boði voru á síðustu leiktíð. “Það eru spennandi tímar framundan, nýr þjálfari sem mér líst afar vel og hlakka mikið til að vinna með honum. Umgjörðin hér í Keflavík er alltaf að vera betri, það sást í úrslitakeppninni og hér er einfaldlega gott að vera.“

Fréttir
- Auglýsing -