spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÁfram í Skagafirðinum

Áfram í Skagafirðinum

Tindastóll hefur samið við Hannes Inga Másson fyrir komandi leiktíð í Bónus deild karla. Tilkynnir félagið þetta á samfélagsmiðlum.

Hannes hefur verið í herbúðum Tindastóls síðustu ár en varðandi framlengingu samningsins segir hann “Ég er virkilega spenntur fyrir komandi tímabili, mér lýst vel á nýja þjálfara og hópinn sem við erum með.” Dagur formaður er líka spenntur fyrir tímabilinu og ánægður með veru Hannesar í liðinu “Það er sérstaklega ánægjulegt að halda svona öflugum heimamanni í liðinu. Hannes er frábær liðsmaður og í fantaformi og verður gaman að fylgjast með honum í vetur.”

Fréttir
- Auglýsing -