Öll vötn renna nú til Reykjanesbæjar en í kvöld eigast við Keflavík og Njarðvík í lokaleik 8-liða úrslitanna í Poweradebikarkeppni karla. Þjálfari Njarðvíkinga, Einar Árni Jóhannsson, fagnar í dag 36 ára afmæli sínu.
Þá er einn Keflvíkingur sem líka heldur daginn hátíðlegan en það er Hákon Svanur Magnússon fyrrum liðsmaður úr hinum grimma 1981 árgangi Keflavíkur sem sópaði til sín verðlaunum í yngri flokkum.
Karfan.is óskar Einari og Hákoni innilega til hamingju með daginn.
Þennan dag árið 1935 fæddist einnig sjálfur Elvis Presley, nú David Bowie á einnig afmæli í dag sem og knattspyrnumaðurinn David Silva og vandræðagemsinn R. Kelly.
* Það voru svo félagar Hákons úr 1. flokknum í Keflavík sem senda honum góða afmæliskveðju með þessari mynd hér að neðan en í bakgrunni er Hákon og í forgrunni Leifur bróðir hans, þriðji maðurinn á myndinni er Huldumaður sem vildi ekki láta nafns síns getið:
*Endilega sendu okkur ábendingar um afmælisbörn… og blessaður/blessuð láttu barnamynd eða ,,planking”-mynd fylgja með eða aðra skemmtilega mynd. Lífið er stutt og yndislegt, skemmtum okkur hratt og oft!