Þau eru nokkur börnin sem eiga afmæli í dag. Við hefjum leikinn á Suðurlandinu þar sem Þorsteinn Már Ragnarsson á afmæli en hann er tvítugur í dag. Það var Nat-maðurinn sem var svo vinsamlegur að senda inn meðfylgjandi mynd af vini sínum. Mikil afmælisbörn þarna í Þorlákshöfn og Hveragerði. Fyrir ykkur sem sáuð jólakveðjuna þá var það Þorsteinn sem reis eins og eldibrandur upp úr kari fullu af hey-i og óskaði landsmönnum gleðilegra jóla, mikill þokkapiltur hér á ferð.
Nú við höldum okkur við Suðurlandið því nýjasti liðsmaður Heklu, Björgvin ,,gamla brýnið” Jóhannesson, er 35 ára í dag og fyrir ykkur sem hafið aðgang að honum á Facebook hefur Björgvin boðið upp á rándýra ,,prófíl” mynd yfir hátíðarnar. Þessu ætti enginn að missa af!
Njarðvíkingurinn Hjörtur Hrafn Einarsson á afmæli í dag en hann er 24 ára og annar Njarðvíkingur sem einnig hefur komið við sögu í yngri landsliðum Íslands, Guðbergur Ólafsson, er 33 ára gamall. Hann er einnig þekktur sem ,,bróðir hans Jóa.”
Páll Axel Vilbergsson á einnig afmæli í dag en kappinn er 35 ára gamall.
Guðmundur Helgi Þórsson leikmaður Mostra er þrítugur í dag en þessi einn af burðarásum í liði Mostra svarar jafnan nafninu Gummi Crane. Gummi fær góðar afmæliskveðjur frá strákunum í Mostra.
Þetta er þó ekki upptalið enn því Al Jefferson á einnig afmæli í dag, kappinn fæddur árið 1985 og var ,,draftaður” í NBA deildina árið 2004 og var þá valinn fimmtándi af Boston Celtics.
Karfan.is óskar öllum afmælisbörnunum innilega til hamingju með daginn.
*Endilega sendu okkur ábendingar um afmælisbörn… og blessaður/blessuð láttu barnamynd eða ,,planking”-mynd fylgja með eða aðra skemmtilega mynd. Lífið er stutt og yndislegt, skemmtum okkur hratt og oft!