spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór og Alicante með bakið upp að vegg

Ægir Þór og Alicante með bakið upp að vegg

Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante máttu þola tap gegn Zunder Palencia í öðrum leik 8 liða úrslita Leb Oro deildarinnar á Spáni, 75-68.

Palencia leiða því með tveimur sigrum gegn engum, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig áfram í undanúrslitin.

Á tæpum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór fjórum stigum, 2 fráköstum og 2 stoðsendingum.

Þriðji leikur einvígis liðanna er komandi föstudag 2. júní.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -