Ægir Þór Steinarsson og félagar í Acunsa GBC máttu þola tap í dag fyrir Granada í Leb Oro deildinni á Spáni, 50-76.
Eftir leikinn eru Acunsa í 9.-13. sæti deildarinnar með tvo sigra og tvö töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 8 stigum, frákasti og 2 stoðsendingum.
Næsti leikur Acunsa í deildinni er þann 30. október gegn Leyma Coruna.