Landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu í kvöld lið Valladolid í Leb Oro deildinni á Spáni, 89-99.
Acunsa eru eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með tvo sigra og eitt tap það sem af er tímabili.
Á tæpum 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 3 stigum, 4 fráköstum, 5 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 24. október gegn Granada.