Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu Leyma Coruna í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 62-49.
Eftir leikinn er Acunsa í 8. sæti deildarinnar með tólf sigra og níu töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir 9 stigum, frákasti, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 13.mars gegn Palma.