spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór og Acunsa GBC lögðu Almansa

Ægir Þór og Acunsa GBC lögðu Almansa

Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu CB Almansa í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 101-78.

Eftir leikinn er Acunsa í 6.-7. sæti deildarinnar með níu sigra og sjö töp það sem af er tímabili líkt og TAU Castello.

Á rúmum 17 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 8 stigum, 2 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.

Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 2. febrúar gegn Caceres.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -