Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu Juaristi í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 80-70.
Eftir leikinn er Acunsa í 3. sæti Leb Oro deildarinnar með 11 sigra og 9 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 24 mínútum spiluðum skilaði Ægir Þór 18 stigum, 4 fráköstum, 5 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann var framlagshæstur í liði Acunsa í dag.
Samkvæmt skipulagi er næsti leikur Acunsa í deildinni þann 6. mars gegn Leyma Coruna.