Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC lögðu Melilla í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 71-79.
Eftir leikinn eru Acunsa í 6. sæti deildarinnar með 50% sigurhlutfall, 6 sigra og 6 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 6 stigum, frákasti, 7 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 22. desember gegn toppliði Movistar Estudiantes