Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC töpuðu í dag fyrir Forca Lleida í Leb Oro deildinni á Spáni, 73-81.
Eftir leikinn er Acunsa í 10. sæti deildarinnar með fimm sigra og sex töp það sem af er tímabili.
Á rétt tæpum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 10 stigum, 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Acunsa í deildinni er þann 17. desember gegn Melilla.