Ægir Þór Steinarsson og félagar í Newberry spiluðu tvo leiki um helgina í Vestur Virginíu fylki þegar liðið mætti annars vegar Daemen á laugardaginn og svo Central State á sunnudag. Liðinu gekk vel á laugardeginum og sigraði Daemen í leik sem augljóslega var hörku leikur og endaði 97:95 fyrir Newberry. Okkar piltur að standa sig vel með 12 stig, 5 stoðsendingar , 4 fráköst og stal knettinum 4 sinnum.
Í seinni leiknum þá virtust Newberry springa á loka kaflnum. Leikurinn var nánast jafn þangað til að um 6 mínútur voru til loka þegar Central State sleit sig frá og náði um 8 stiga forystu sem Newberry náði aldrei að brúa til loka leiks. 67:73 endaði sá leikur og línan hjá okkar manni 6 stig, 1 stoðsending ásamt 2 fráköstum.