Íslenska landsliðið ferðaðist í gær laugardag til Ítalíu þar sem liðið mun mæta heimamönnum í fjórða leik undankeppni EuroBasket 2025 á mánudagskvöldið. Fyrri leikur liðanna fór fram síðasta föstudag heima á Íslandi, en í honum hafði Ítalía sigur í nokkuð kaflaskiptum leik.
Karfan ræddi við fyrirliða liðsins Ægir Þór Steinarsson rétt eftir komuna til Reggio Emilia, en liðið fór beint á æfingu eftir komuna til Ítalíu.