{mosimage}
Dagana 7.- 9. september n.k. heldur UMFN æfingamót í samstarfi við Allt hreint. Leiknir verða tveir leikir á dag þessa þrjá daga og eru það lið KR, ÍR og Grindavíkur sem mæta til leiks ásamt Njarðvíkingum.
Allir leikir á mótinu:
Fim. 7.sep.2006
19.00 UMFN – UMFG
21.00 KR – ÍR
Fös. 8.sep.2006
19.00 KR – UMFN
21.00 ÍR – UMFG
Lau. 9.sep.2006
14.00 UMFG – KR
16.00 UMFN – ÍR
Það má geta þess að dagana 21.- 23. september heldur UMFN svo annað æfingamót í samstarfi við Húsasmiðjuna en þar verða Keflvíkingar, Haukar og Þór úr Þorlákshöfn auk Njarðvíkinga. Á þeim tímapunkti ættu öll liðin að vera fullmönnuð en liðin leika án landsliðsmanna um þessar mundir þar sem verkefni þeirra klárast 16. september.