Íslenska kvennalandsliðið heldur af landi brott á sunnudag til þess að leika tvo leiki í undankeppni EuroBasket 2021 í Grikklandi.
Leikirnir fara fram í landsliðsglugga FIBA dagana 8.-15. nóvember og verða leiknir á Grikklandi í Heraklion á eyjunni Krít í öruggri „bubblu“ sem FIBA setur upp fyrir öll liðin í A-riðli undankeppninnar. Farið verður eftir ströngum reglum innan hennar með sóttvarnir. Leikirnir í undankeppninni hjá öllum liðum í nóvember áttu að vera heima og að heiman en hefur nú verið breytt fyrir alla riðla í einangraða leikstaði, líkt og NBA-deildinn vestanhafs gerði á Florída nú í haust.
Leikdagar verða fimmtudaginn 12.nóvember og laugardaginn 14. nóvember. Báðir leikirnir kl.15.00 að íslenskum tíma og í beinni útsendingu á RÚV. Fyrri leikurinn er gegn Slóveníu og sá seinni gegn Búlgaríu.
Líkt og allir vita er æfingabann á Íslandi þessa stundina, en í gær fékk liðið undanþágu fyrir 11 leikmenn til einstaklingsæfinga innandyra og munu leikmennirnir því komast á æfingu í húsi Breiðabliks í Smáranum áður en haldið er út.
Hópinn má í heild sjá hér fyrir neðan, en eins og greint hafði verið frá kom Salbjörg í stað Hildar Bjargar í hópinn á dögunum.
Nafn · Félag (landsleikir)
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (2)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (4)
Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (Nýliði)
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur (20)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (21)
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik (4)
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík (Nýliði)
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (2)
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Keflavík (6)
Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester, England (19)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (53)
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar (17)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)
Þjálfarar og fararteymi:
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Danielle Rodriguez
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir
Fararstjóri: Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ
Sóttvanrarfulltrúi: Guðbjörg Elíasdóttir Norðfjörð, varaformaður KKÍ
Liðstjórn: Kristinn Geir Pálsson, afreksstjóri KKÍ