Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola tap í dag gegn Baskonia í ACB deildinni á Spáni, 67-69.
Á tæpum 29 mínútum spiluðum skilaði Tryggvi 17 stigum, 6 fráköstum, stolnum bolta og 3 vörðum skotum, en hann var framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum.
Eftir leikinn er Bilbao í 14. sæti deildarinnar með þrjá sigra og sjö töp.