Njarðvík hefur samið við Evans Ganapamo fyrir yfirstandandi átök í Bónus deild karla.
Evans er 201 cm, 30 ára bakvörður frá Mið-Afríkulýðveldinu með franskt vegabréf, en til Njarðvíkur kemur hann frá Bangui í heimalandinu. Á hann að baki nokkurra ára feril sem atvinnumaður þar sem hann hefur einnig verið á mála hjá liðum í Þýskalandi, Frakklandi, Suður Afríku og í Kanada. Þá hefur hann einnig verið hluti af landsliði Mið_afríkulýðveldisins á síðustu árum.
Tilkynning:
Njarðvíkingar hafa samið við bakvörðinn Evans Ganapamo. Hann er landsliðsmaður mið-Afríkulýðveldisins, en hann er einnig með franskt vegabréf. Ganapamo er þrítugur og 201 cm á hæð. Síðustu ár hefur hann leikið í Afríku hjá Cape Town og Bangui Sporting Club. Áður lék hann hjá París Basketball í b-deild í Frakklandi. Hann lék með New Orleans háskólanum í Bandaríkjunum.