spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStólarnir ekki mikil fyrirstaða fyrir sjóðheita Keflvíkinga

Stólarnir ekki mikil fyrirstaða fyrir sjóðheita Keflvíkinga

Keflavík tók á móti Tindastól í Bónus deild karla í Blue höllinni í Keflavík í kvöld. Næstum klukkutíma töf varð á því að leikurinn byrjaði vegna klukkuvandræða og um tíma tvísýnt um að hann færi fram.

Þegar leikurinn loks hófst þá byrjaði hann með látum, Drungilas tók sóknarfrákast en setti olnbogann í höfuð Marek Stolisaj og fékk óíþróttamannslega villu dæmda á sig. Heimamenn komust skrefinu á undan og leiddu allan fyrsta leikhlutann sem endaði 28-20. Stólar voru mjög stirðir sóknarlega og vörnin var enn verri ef eitthvað var og heimamenn í Kef gengu á lagið og sölluðu körfum á ráðvillta gestina. Arnar Björnsson minnkaði muninn í 9 stig með góðum þrist á lokasekúndu hálfleiksins en þá höfðu Keflavík sett 59 stig á gestina.

Ef Tindastóll hafði von þá var hún veik og Keflavík hélt þeim í þægilegri fjarlægð fram í miðjan þriðja leikhluta þegar þeir stungu svo hreinlega af með 2 þristum frá Igor og troðslu frá Remu, munurinn allt í einu kominn í 20 stig. Stólar sem voru án Péturs Rúnars og Sadio sem meiddist, áttu engin svör og Keflavík sigldi þægilegum sigri heim.

Ty-Shon Alexander var frábær í liði Kef í kvöld og endaði með 33 stig og 40 framlagsstig. Hjá gestunum var fátt um fína drætti, Basile endaði stigahæstur með 20 stig.

Tölfræði leiks

Umfjöllun / Hjalti Árna

Viðtöl upphaflega birt á vef Víkurfrétta

Fréttir
- Auglýsing -