Stjarnan hafði betur gegn Álftanesi í Forsetahöllinni í kvöld í 9. umferð Bónus deildar karla, 77-97.
Eftir leikinn er Stjarnan í efsta sæti deildarinnar með 16 stig á meðan Álftanes eru með 8 stig í 7. til 8. sætinu.
Leikurinn var nokkuð jafn á upphafsmínútunum, þar sem gestirnir voru þó skrefinu á undan og leiddu með 3 stigum eftir fyrsta leikhluta. Við þá forystu nær Stjarnan að bæta og fara þeir með 10 stiga forskot til búningsherbergja í hálfleik.
Hægt og rólega bætir Stjarnan svo í sarpinn í upphafi annars hálfleiks og eru þeir komnir með 22 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann. Fjórði leikhlutinn því einskonar formsatriði að er virtist, en að lokum vinnur Stjarnan með 20 stigum, 77-97.
Atkvæðamestir í liði heimamanna í kvöld voru Dimitrios Klonaras með 19 stig, 9 fráköst og David Okeke með 13 stig og 9 fráköst.
Fyrir Stjörnuna var það Shaquille Rombley sem dró vagninn með 14 stigum og 13 fráköstum. Þá skiluðu Orri Gunnarsson 21 stigi, 8 fráköstum og Ægir Þór Steinarsson var með 18 stig og 7 stoðsendingar.
Myndasafn (væntanlegt)