Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons máttu þola tap gegn Fliou Oostende í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu í kvöld, 91-77.
Á 35 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær 7 stigum, 5 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta.
Eftir leikinn er Mons í 10. sæti deildarinnar með 50% sigurhlutfall, 6 sigra og 6 töp það sem af er tímabili.