Nýliðar ÍR tóku á móti núverandi Íslandsmeisturm Vals í Skógarselinu.
ÍR-ingar með nýjan en samt gamlan þjálfara í sínum fyrsta leik, Borche Ilievski. Valsmenn voru síðan að endurheimta sinn þjálfara aftur eftir langt veikindaleyfi, Finnur Freyr er mættur. Fyrirfram mátti búast kannski við auðveldum Valssigri, en þeir kjöldrógu ÍR inga í bikarkeppninni. Leikurinn var stórskemmtilegur og frekar jafn allan leikinn, ÍR náðu að kreista fram sigur 84-83.
Karfan spjallaði við Finn Frey Stefánsson þjálfara Vals eftir leik í Skógarseli.