Bjarmi Skarphéðinsson mun taka við þjálfun Selfoss í fyrstu deild karla af Árna Þór Hilmarssyni, sem á dögunum sagði starfi sínu lausu vegna heilsubrests. Staðfestir félagið þettameð fréttatilkynningu. Bjarmi var aðstoðarþjálfari Árna, en í hans stað til aðstoðar mun koma Geir Helgason.
Tilkynning:
Eins og áður hefur komið fram þurfti Árni Þór Hilmarsson að segja upp störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Selfoss Körfu vegna veikinda.
Bjarmi Skarphéðinsson mun taka við þjálfun meistaraflokks karla um óákveðinn tíma og Geir Helgason verða honum til halds og trausts sem aðstoðarþjálfari. Bjarmi hefur síðastliðin ár þjálfað 10.-12. flokk drengja, hinn margmenna hóp fædda 2006 og 2007, ásamt því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks í haust. Geir hefur stýrt styrktarþjálfun ásamt því að vera aðstoðarþjálfari í 12. flokk og meistaraflokk.
Bjarmi og Geir þekkja leikmannahópinn vel, sem og stefnu félagsins, þannig að starfið er áfram í góðum höndum. Stjórn Selfoss Körfu þakkar Árna fyrir vel unnin störf og óskar þeim Bjarma og Geir góðs gengis í komandi verkefnum.