Sex agamál fengu úrlausn Aga- og úrskurðarnefndar KKÍ nú í dag.
Í fjórum málum var um að ræða áminningu og þá fengu tveir eins leiks bann. Annarsvegar þjálfari Snæfells í fyrstu deild karla Gunnlaugur Smárason fyrir háttsemi sína í leik gegn Þór Akureyri og Lars Erik Bragason úr KR/KV fyrir háttsemi sína í leik gegn ÍR í 12. flokki.
Úrlausnir nefndarinnar má lesa hér fyrir neðan.
Agamál 11/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson, leikmaður Þórs Akureyris, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells gegn Þór Akureyri, sem fram fór þann 8 nóvember 2024.
Agamál 12/2024-2025
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gunnlaugur Smárason, þjálfari Snæfells, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells gegn Þór Akureyri, sem fram fór þann 8 nóvember 2024.
Agamál 13/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ísak Örn Baldursson, leikmaður Snæfells, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells gegn Þór Akureyri, sem fram fór þann 8 nóvember 2024
Agamál 14/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Tim Bryan Dalger, leikmaður Þórs Akureyris, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells gegn Þór Akureyri, sem fram fór þann 8 nóvember 2024.
Agamál 17/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Lars Erik Bragason, leikmaður KR/KV, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍR gegn KR/KV í 12 flokki karla, sem fram fór þann 19 nóvember 2024.
Agamál 18/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Fotios Lambropoulos, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hamars gegn ÍA, sem fram fór þann 21 nóvember 2024.