Sjötti maðurinn breytti útaf vananum þar sem var farið í King of the court útgáfu eða viðtalsútgáfu.
Í þáttinn fékk Sjötti maðurinn þjálfarann Árna Þór Hilmarsson sem þjálfað hefur til fjölda ára í yngri flokkum sem og meistaraflokki og þá aðallega á Flúðum, en síðast var hann með meistaraflokk karla á Selfossi. Árni hefur líka tekið að sér yngri landsliðsverkefni og margt margt fleira. Í þættinum kemst Sjötti maðurinn að ýmsu varðandi bæði leikmanninn Árna og þjálfarann Árna.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils