Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur fengið félagaskipti til nýliða KV í fyrstu deild karla.
Er þetta staðfest á félagaskiptasíðu KKÍ og mun Guðmundur vera löglegur með félaginu frá og með gærdeginum.
Guðmundur Emil er 26 ára gamall og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frumlega nálgun sína að andlegri og líkamlegri heilsu síðustu misseri, ekki síst í gegnum átak sitt Víkingar vakna. Hæfileikar hans á körfuboltavellinum hafa þó hlotið minni umfjöllun, en spurning er nú hvort breyting verði þar á.
@gummiemil Víkingar Vakna. Út fyrir þægindarrammann. Borða nóg af feitum fisk til að höndla kuldann, fá omega 3 og lýsi.
Ekki er á hreinu nákvæmlega hver aðkoma Guðmundar Emils verður að liðinu, en ljóst er að Fali Harðarsyni þjálfara þeirra er nú leyft að hafa hann í hópi í næsta leik. Nýliðum KV hefur gengið vel það sem af er tímabili í fyrstu deildinni, eru sem stendur í 6. sætinu með fjóra sigra og þrjú töp, en næsti leikur þeirra er gegn Skallagrími annað kvöld á Meistaravöllum.