spot_img
HomeFréttirElín Sóley og Tulsa töpuðu fyrir Memphis Tigers

Elín Sóley og Tulsa töpuðu fyrir Memphis Tigers

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir og Tulsa Golden Hurricane máttu þola tap í kvöld fyrir Memphis Tigers í bandaríska háskólaboltanum, 50-59. Það sem af er tímabili hafa Tulsa unnið fjóra leiki og tapað sex, en þær sitja í 7. sæti America deildarinnar.

Elín Sóley lék 11 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 4 stigum, frákasti og vörðu skoti. Næsti leikur Tulsa er 30. janúar gegn East Carolina Pirates.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -