Valsmenn tóku á móti KR-ingum í sannkölluðum Reykjavíkurslag í 7. Umferð Bónusdeildarinnar. KR byrjuðu leikinn af krafti og voru með sannfærandi forystu eftir fyrsta leikhluta, en frábær þriðji leikhluti Valsmanna kom þeim í bílstjóra sætið. Það fór svo að Valur landaði sigri þrátt fyrir hetjulega baráttu KR-inga, 101-94.
Karfan spjallaði við Kristófer Acox þjálfara Vals eftir leik kvöldsins. Kristófer var að þjálfa lið Vals í fyrsta skipti í kvöld, en þjálfari þeirra Finnur Freyr Stefánsson hefur verið í leyfi það sem af er tímabili. Samkvæmt Kristófer mun hann aðeins hafa stigið inn fyrir aðstoðarþjálfarann Jamil Abiad í kvöld vegna veikinda.